Spurningar sem berast varðandi kynningarferlið og virkni síðunnar meðan á umsagnarferlinu stendur og svör við þeim verða birt hér á síðunni til upplýsingar fyrir alla notendur hennar. Vísað er til skýrslu verkefnisstjórnar og draga að þingsályktunartillögu varðandi rökstuðning og umfjöllun um stöku svæði sem tekin eru til umfjöllunar í þingsályktunardrögunum.
Já, hægt er að senda skriflega umsögn til iðnaðarráðuneytisins og/eða umhverfisráðuneytisins. Umsögnin verður þá skönnuð inn og sett á vefinn ásamt öðrum umsögnum. Umsagnir séu merktar:
Iðnaðarráðuneyti
„Rammaáætlun – umsögn“
Arnarhváli
150 Reykjavík
eða
Umhverfisráðuneyti
„Rammaáætlun – umsögn“
Skuggasundi 1
150 Reykjavík
Vegna tæknilegra vankanta á skráningarkerfi vantar í sumum tilfellum inn í númeraröð umsagna.