Lögum samkvæmt hefur farið fram 12 vikna opið umsagnarferli um drög að þingsályktun iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra um verndun og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði.
Allt frá árinu 1999 stóð yfir vinna við gerð rammaáætlunar og því mikilvægt að þjóðin segði skoðun sína á drögunum. Allar umsagnir sem bárust eru birtar á þessu vefsvæði.
Með rammaáætlun er mörkuð stefna um það hvaða virkjunarkostir komi til greina og hvaða svæði beri að friða og er markmiðið að ná framtíðarsýn í verndunar- og virkjanamálum og almennri sátt í þjóðfélaginu.
Drögin að þingsályktunartillögunni sem lágu til umsagnar hjá þjóðinni voru byggð á viðamikilli vinnu verkefnisstjórnar 2. áfanga rammaáætlunar og faghópa hennar. Þegar búið verður að vega og meta þær umsagnir sem bárust, munu umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra sameiginlega leggja fram þingsályktunartillögu fyrir Alþingi sem hefur síðasta orðið um það hvernig þeim svæðum sem komu til mats verður raðað í nýtingarflokk, biðflokk eða verndarflokk.
Í samráðs- og kynningarferlinu var jafnframt kallað eftir umsögnum vegna umhverfismats áætlana.