Leita á vefnum


Virkjunarkostir 2. áfanga rammaáætlunar

Endalegur listi yfir virkjunarkosti 2. áfanga. Hér má nálgast endanlegan lista yfir þá virkjunarkosti sem til umfjöllunar eru í 2. áfanga. Listarnir eru tveir, annars vegar yfir vatnaflskosti og hins vegar yfir jarðhitakosti á háhitasvæðum. Hér má einnig nálgast skýringar við töflurnar.

Lýsingar á virkjunarkostum og kort. Hér má nálgast lýsingar á öllum virkjunarkostum sem metnir voru í 2.áfanga rammaáæltunar. Mjög var misjafnt hversu ítarlegar upplýsingar lágu fyrir um einstaka kosti en um örfáa þeirra lágu aðeins fyrir lausleg hugmyndadrög. Þá má opna Íslandskort sem sýnir staðsetningar virkjunarkostanna og legu miðlunarlóna sem fylgja vatnsaflskostum.

Frá 8. apríl til 3. maí 2010 stóð yfir kynningar- og umsagnarferli um niðurstöður faghópa. Hér má heimsækja kynningarsvæði á þessari vefsíðu um ferlið og einnig liggja frammi þær 39 umsagnir sem bárust verkefnisstjórn..

Kynning á virkjunarkostum. Þann 9. júní 2009 hélt Verkefnisstjórn 2. áfanga rammaáætlunar opinn kynningarfund í Þjóðminjasafninu þar sem kynnt voru frumdrög þeirra virkjunarkosta sem metnir eru undir hatti 2. áfanga áætlunarinnar. Guðni Jóhannesson orkumálastjóri sem jafnframt er formaður faghóps IV,, flutti kynninguna og hér má nálgast fyrirlestrarglærur hans. Vert er að taka fram að yfirlitið efst á þessari síðu er hinn endanlegi listi.



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica