Virkjunarkostir 1. áfanga rammaáætlunar
METin orkugeta í 1. áfanga
Í fyrsta áfanga rammaáætlunar, sem lauk í árslok 2003, var faghópum falið að meta 35 virkjunarhugmyndir. Orkugeta þeirra samanlagt er um 28 þúsund GWh á ári. Í fjórum tilvikum voru tvær virkjunarleiðir, a og b, metnar fyrir sama orkukost.
Til samanburðar voru einnig metnar 8 virkjunartillögur sem ítarleg gögn eru til um og því var æskilegt að hafa með í samanburði. Orkugeta þeirra er allt að 6,7 þús. GWh á ári. Lengi var að því stefnt að taka einnig til mats í 1. áfanga virkjunarhugmyndir í Hvítá í Árnessýslu og í Hverfisfljóti til þess að samanburður næðist milli allra stærstu orkukosta í jökulám. Vegna takmarkaðra rannsókna á náttúrufari og kostnaðar varð þó að fresta Hvítá til 2. áfanga. Rannsókn á aðstæðum við Hverfisfljót leiddi í ljós að vegna leka yrði erfitt að finna stað fyrir miðlunarlón. Því var sú hugmynd ekki tekin til mats nú.
Í töflunni að neðan er yfirlit yfir þær virkjanir sem metnar voru í 1. áfanga. Númer framan við nöfn virkjananna eru auðkennisnúmer þeirra. Jarðvarmavirkjunum er þar raðað í landfræðilega röð eftir gosbeltinu frá Reykjanesi í suðvestri til Þeistareykja í norðri en vatnsaflsvirkjunum frá Skagafirði austur um land og suður. (Úr niðurstöðuskýrslu 1. áfanga, bls. 40)
vatnsaflskostir 1. áfanga
Í hægri hluta töflunnar að neðan er að finna einstaka vatnsaflskosti sem metnir voru í 1. áfanga rammaáætlunar (Viðauki A-1 í niðurstöðuskýrslu 1. áfanga). Með því að smella á millifyrirsögnina að ofan opnast viðauki niðurstöðuskýrslu 1. áfanga þar sem er að finna lýsingar á og kort af hverjum virkjunarkosti. Hverjum kosti í töflunni fylgir blaðsíðunúmer (skáletur innan sviga) sem vísar til blaðsíðunúmers umfjöllunar í viðaukanum. Auk þeirra vatnsaflskosta sem fram koma í töflunni er í viðaukanum að finna lýsingu á virkjunarhugmyndum í Hverfisfljóti (bls. 40) og Djúpá (bls. 42). Þess skal getið að í sumum tilvikum hafa þessar hugmyndir sem lágu til grundvallar mats í 1. áfanga verið endurskoðaðar og þeim breytt. Nýjustu hugmyndir verða kynntar í kaflanum um virkjunarkosti 2. áfanga hér á heimasíðunni þegar þær munu liggja fyrir.
jarðhitakostir 1. áfanga
Í vinstri hluta töflunnar að neðan eru einstakir jarðhitakosti sem metnir voru í 1. áfanga (Viðauki A-2 í niðurstöðuskýrslu 1. áfanga). Með því að smella á millifyrirsögnina að ofan opnast viðauki niðurstöðuskýrslu 1. áfanga þar sem er að finna lýsingar á og kort af hverjum jarðhitakosti. Hverjum kosti í töflunni fylgir einnig blaðsíðunúmer (skáletur innan sviga) sem vísar til blaðsíðunúmers umfjöllunar í viðaukanum. Þess skal getið að lýsingar á jarðhitakostum eru fremur stuttar og knappar enda upplýsingar um jarðhitasvæðin mun takmarkaðri en raunin var um vatnsaflskosti. Úr þessu verður bætt í 2. áfanga.
| Jarðvarmavirkjanir |
Orkugeta (GWh/ár) |
Vatnsaflsvirkjanir |
Orkugeta (GWh/ár) |
|---|---|---|---|
| Reykjanes (2) | 840 | JÖKULSÁR Í SKAGAFIRÐI | |
| KRÍSUVÍKURSVÆÐI (4-6) | Skjatastaðavirkjun a (2) | 1.046 | |
| Sandfell (4) | 840 | Skatastaðavirkjun b (4) | (1.290) |
| Trölladyngja (5) | 840 | SKJÁLFANDAFLJÓT | |
| Seltún (5) | 840 | Fljótshnjúksvirkjun (8) | 405 |
| Austurengjar (5) | 840 | Hrafnabjargavirkjun a (10) | 575 |
| Brennisteinsfjöll (6) | 840 | Hrafnabjargavirkjun b (12) | (618) |
| HENGILSSVÆÐI (7-8) | |||
| Hellisheiði (7) | 840 | Jökulsá á Fjöllum (14) | 4.000 |
| Innstidalur (7) | 840 | ||
| Grændalur (7) | 840 | Skaftárvirkjun (20) | 904 |
| Þverárdalur (8) | 840 | Hólmsárvirkjun (22) | 438 |
| Ölkelduháls (8) | 840 | Skaftárveita (28) | 450 |
| TORFAJÖKULSSVÆÐI (10-13) | |||
| Reykjadalir vestari (10) | 840 | Markarfljót a (24) | 735 |
| Reykjadalir austari (11) | 840 | Markarfljót b (26) | (855) |
| Reykjadalir (Kaldaklof) (11) | 840 | ||
| Háuhverir (12) | 840 | Núpsvirkjun a (34) | 1.001 |
| Brennisteinsalda (12) | 840 | Núpsvirkjun b (36) | (1.019) |
| Hágöngusvæði (9) | 840 | Urriðafossvirkjun (38) | 920 |
| Þeistareykir (14) | 840 | ||
| Bjarnarflag (15/17) | 560 | ||
| Krafla Vestursvæði (16/17) | 840 | ||
| Krafla Leirhnjúkur (16/17) | 840 | ||
| Metin orkugeta í jarðvarma | 17.360 | Metin orkugeta í vatnsafli | 10.474 |
| Til samanburðar: | |||
| Villinganesvirkjun (5) | 190 | ||
| Til samanburðar: | Kárahnjúkavirkjun (16) | 4.670 | |
| Svartsengi - stækkun | 140 | Fljótsdalsvirkjun (18) | (1.390) |
| Nesjavellir - stækkun | 210 | Norðlingaölduveita (575 m) (30) | 650 |
| Krafla I - stækkun | 280 | Búðarhálsvirkjun (32) | 630 |
| Samanburður alls | 630 | Samanburður alls | 6.140 |
Metin orkugeta í jarðvarma alls |
17.990 |
Metin orkugeta í vatnsafli alls |
16.614 |
metin orkugeta í 1.áfanga alls: |
34.604 GWh/ár |
