Leita á vefnum


Vinnulag rammaáætlunar

Verkefnisstjórn og faghópar

Verkefnisstjórn

Þrjár verkefnastjórnir hafa komið að stjórnun rammaáætlunar. Í verkefnisstjórn 1. áfanga 1999-2003 sátu 16 manns; 12 voru skipaðir beint í stjórnina og auk þeirra sátu þar fjórir formenn faghópa. Í fyrri hluta 2. áfanga, 2004-2007, voru frekari rannsóknir og mat um framhaldið í höndum þriggja manna verkefnisstjórnar en núverandi 12 manna verkefnisstjórn tók við í september 2007 og henni er ætlað að leiða starfið til lykta.

Fyrsti áfangi rammaáætlunar spannaði árin 1999-2003 og lauk með efnismikilli niðurstöðuskýrslu sem út kom í árslok 2003. Markmið 2. áfanga sem hófst 2004 var að vinna að frekari rannsóknum og undirbúningi fleiri virkjunarkosta og að rannsaka frekar ýmsa kosti sem metnir voru í 1. áfanga þar sem tiltækar rannsóknir þóttu ekki fullnægjandi.

Í upphafi annars áfanga var starfið framundan metið, frekari rannsóknum ýtt úr vör og mótaðar tillögur um framvinduna. Vorið 2007 kom út framvinduskýrsla um áætlunina og um haustið var skipuð ný verkefnisstjórn sem að loknum rannsóknum og undirbúningi nýrra virkjana skal vinna samræmt heildarmat fyrir allar þær virkjanir sem verið hafa til umfjöllunar í báðum áföngum rammaáætlunar. Endanleg skil á niðurstöðum 2. áfanga rammaáætunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma er áætluð í ársbyrjun 2010, rúmum áratug eftir að fyrsta verkefnisstjórn tók til starfa.

Frá upphafi var skipulag undirbúningsvinnu að rammaáætlun hugsað á þann veg að þar væri í öndvegi fagleg aðkoma og vinna sérfræðinga er besta þekkingu hefðu á viðfangsefninu. Einnig að skapaður yrði almennur samráðsvettvangur hagsmunaðila sem eðlilegt væri að kæmu að málinu, áhugafólks og almennings þannig allir hefðu tök á að fylgjast með framgangi áætlunarinnar. Fyrir vinnunni færi öflug verkefnisstjórn sem mótaði áætlunina og skipulag hennar og beindi hinni faglegu vinnu í réttan farveg. Stjórnin stæði fyrir samráði og kynningu með skipulegum hætti. Samkvæmt þessu var skipulagið þríþætt; verkefnisstjórn, faghópar og samráðsvettvangur. Þessi skipan mála hefur haldist alla tíð.

Í undirbúningsferli rammaáætlunar var að nokkru litið til reynslu Norðmanna af ámóta verkefni sem framkvæmt var í upphafi 9. áratugarins. Aðstæður Norðmanna voru þó aðrar en Íslendinga, m.a. hafði þegar um 60% af virkjanlegri orku verið beisluð og í Noregi er aðeins finna vatnsorku en ekki jarðhita.

Fyrsta verkefnisstjórnin var skipuð vorið 1999 og tók þegar til starfa. Verksvið stjórnarinnar sem skipuð var 16 manns, var afmarkað þannig í samræmi við verklýsingu  í greinargerðinni "Maður - nýting -náttúra" frá í mars 1999:

  • Að skilgreina og afmarka viðfangsefnið og setja því meginramma.
  • Að fjalla um tillögur faghópanna um gagnaöflun og rannsóknarþörf og gera í ljósi þeirra tillögur til Iðnaðarráðuneytisins.
  • Að móta verkreglur fyrir starf faghópanna, einkum hvað varðar stigagjöf þeirra vegna einstakra orkuverkefna og fylgjast með starfi þeirra.
  • Að finna og skilgreina aðferðir til að meta orkukostina í heild á grundvelli stigagjafar faghópanna.
  • Að vinna úr niðurstöðum faghópanna og flokka virkjunarkostina á grundvelli stigagjafar faghópanna.


Hlutverk stofnana

Áhersla var lögð á að það skyldi vera hlutverk viðkomandi stofnana, einkum Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands, að standa fyrir rannsóknum vegna viðfangsefnisins og veita verkefnisstjórn öflugan faglegan bakgrunn. Þá yrði Orkustofnun bakhjarl verkefnisstjórnar á sviði orkumála en Náttúrufræðistofnun Íslands ásamt Náttúruvernd ríkisins í málum sem vörðuðu náttúrufar og mat á verndargildi.

 

Víðtækt samráð

Sem fyrr segir er verkefnisstjórninni ætlað á starfstíma sínum að hafa víðtækt samráð við almenning og alla hagsmunaaðila, m.a. með kynningarfundum og sérstakri vefsíðu með upplýsingum fyrir almenning og hagsmunaaðila.

Stjórnin lauk störfum og skilaði skýrslu til iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra með heildarmati og röðun á þeim hugmyndum sem teknar voru til umfjöllunar í byrjun júlí 2011.  Samkvæmt lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun leggur iðnaðarráðherra í samráði við umhverfisráðherra fram tillögu til þingsályktunar um flokkun virkjunarhugmynda á grundvelli tillagna verkefnisstjórnar 2. áfanga rammaáætlunar. Áður fara drög að tillögunni ásamt tilheyrandi umhverfisskýrslu í opið samráðs- og kynningarferli sem stendur yfir í 12 vikur.



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica