Leita á vefnum


Aðdragandi á alþjóðavettvangi

forysta sameinuðu þjóðanna

 

Hin svokallaða Stokkhólms-ráðstefna um vernd umhverfis mannsins árið 1972 markaði tímamót í umhverfismálum. Hún var fyrsta stóra alþjóðaráðstefnan sem snerist fyrst og fremst um umhverfismál og leiddi til stofnunar Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna  (UN Environment Programme, UNEP) sem hefur allar götur síðan verið leiðandi afl í umhverfismálum á alþjóðavettvangi.


Árið 1989 samþykkti Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna (SÞ) að halda alþjóðlega ráðstefnu um umhverfi og þróun á árinu 1992 og fundarstaðurinn var borgin  Ríó de Janeiro. Þá voru liðin 20 ár frá Stokkhólms-ráðstefnunni um umhverfi mannsins. Aðdragandi þessarar samþykktar var sú mikla umræða sem farið hafði fram innan og utan stofnana SÞ í kjölfar skýrslu Brundtland-nefndarinnar svokölluðu (kennd við formann nefndarinnar, Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs). Skýrslan, "Sameiginleg framtíð okkar" ("Our Common Future"), kom út 1987 og beindi sjónum manna að þeim vanda sem við veröldinni blasti í umhverfismálum og vakti umræðu um nauðsyn þess að láta verkin tala og hrinda í framkvæmd hugmyndum um sjálfbæra þróun. 

 

Heimsráðstefna SÞ um umhverfi og þróun  í Ríó de Janeiro 1992 markaði önnur tímamót í umhverfismálum. Á ráðstefnuna mættu um 100 þjóðarleiðtogar og aldrei fyrr höfðu mætt jafn margir leiðtogar á einn fund, sem segir sitt um hve mjög áhersla á umhverfismál hafði aukist. Á ráðstefnunni var samþykkt Ríó-yfirlýsingin sem hefur að geyma grundvallarreglur í umhverfismálum og einnig viðamikil framkvæmdaáætlun, Dagskrá 21 (Agenda 21) sem m.a.  endurspeglast hérlendis í  Staðardagskrám sveitarfélaga (Local Agenda 21). Hugtakið "sjálfbær þróun" var sett í öndvegi í samþykktum Ríó-ráðstefnunnar en í því felst að efnahagsleg og félagsleg velferð mannsins sé byggð á vernd umhverfisins og skynsamlegri nýtingu náttúruauðlinda. (Sjá nánari umfjöllun um sjálfbæra þróun annars staðar á vefsíðunni). Í Ríó var að auki skrifað undir tvo grundvallarsamninga um umhverfismál; Rammasamning um loftslagsbreytingar og Samning um líffræðilega fjölbreytni.



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica