Sýn Íslendinga á beislun innlendra orkugjafa hefur breyst. Samstaða hefur verið um virkjun heita vatnsins frá lághita-svæðum til upphitunar og framan af um framleiðslu rafmagns með beislun fallvatna. Uppgangur stóriðju og aukin virkjun fallvatna og háhitasvæða í þeirra þágu hefur kallað fram raddir náttúruverndar, sjálfbærrar þróunar og útivistar. Rammaáætlun um nýtingu vatnaafls og jarðvarma er matsferli á virkjunarkostum og náttúrugæðum sem leitar málamiðlunar milli verndar, annarrar nýtingar náttúrugæða og orkuframkvæmda.
