aðferðafræði og niðurstöður
faghópur II
Smellið hértil að opna kafla faghóps II í niðurstöðuskýrslu faghópa 2. áfanga rammaáætlunar.
Áhrif virkjana á ferðamennsku og útivist
Tveir meðlimir faghóps II báru hitann og þungann af þróun nýrrar aðferðafræði sem beitt var við mat hagsmuna ferðaþjónustu og útivistar gagnvart virkjunarhugmyndum. Þetta voru þau Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent í ferðamálafræði við líf- og umhverfisvísindasvið Háskóla Íslands, og Rögnvaldur Ólafsson, forstöðumaður fræðasetra Háskóla Íslands. Umfjöllun um mat á hagsmunum ferðaþjónustu og útivistar í niðurstöðuskýrslu faghópa er mjög stytt útgáfa af fræðilegum rökstuðningi Önnu Dóru og Rögnvaldar fyrir aðferðafræðinni. Smellið á titilinn að ofan til að lesa óstytta útgáfu rökstuðnings þeirra.
