kynningar- og umsagnarferli 2. áfanga rammaáætlunar
Umsagnarferli um niðurstöður faghópa 2. áfanga: 8. mars - 3. maí 2010
Opið kynningar- og umsagnarferli 2. áfanga rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði hófst formlega þann 8. mars og lauk 3. maí 2010. Í byrjun ferlisins var þetta vefsvæði opnað þar sem áhugasemir geta nálgast þau gögn og upplýsingar sem verkefnisstjórn leggur fram um niðurstöður fjögurra faghópa sem luku störfum í febrúar.
Sérstök áhersla er lögð á að niðurstöður faghópanna er ekki lokaniðurstaða 2. áfanga. Niðurstöður faghópanna leggja hins vegar grunninn að vinnu verkefnisstjórnar að lokaröðun/flokkun virkjunarkosta og svæða sem tekur við að umsagnarferlinu loknu. Verkefnisstjórnin mun þá samþætta niðurstöður faghópa og hafa umsagnir frá öðrum aðilum til hliðsjónar. Að því verki loknu leggur verkefnisstjórn tillögur sínar í hendur stjórnvalda.
Markmið Rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði er að skapa forsendur fyrir sátt um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Í áætluninni skal leggja mat á og flokka virkjunarkosti, jafnt vatnsafls og háhita og áhrif þeirra á náttúrufar og menningarminjar, meðal annars með tilliti til orkugetu, hagkvæmni og annars þjóðhagslegs gildis, samhliða því að skilgreina og meta áhrif á hagsmuni allra þeirra sem nýtt geta þessi sömu gæði.
Skýrsla verkefnisstjórnar með niðurstöðum faghópanna var megin gagn þessa umsagnarferlisins. Hún var prentuð í takmörkuðu upplagi og voru prentuð eintök fyrst og fremst send þeim aðilum er sóttu kynningar og/eða samráðsfundi með verkefnisstjórn rammaáætlunar. Skýrslan, ásamt margs konar ítarefni, liggur frammi á þessari vefsíðu. Í skýrslunni er að finna kynningu á þeim virkjunarkostum/svæðum sem til umfjöllunar eru ásamt lýsingu á starfi, aðferðafræði og niðurstöðum fjögurra faghópa sem metið hafa þessi svæði og virkjunarkosti, hver á sínu sérsviði.
Á meðan á umsagnarferlinu stóð var leitað eftir athugasemdum og ábendingum um niðurstöður faghópanna.
Á þessu vefsvæði liggja m.a. eftirfarandi gögn:
- Heildarskýrsla um niðurstöður faghópa
- Upplýsingar um umsagnarferlið
- Upplýsingar um faghópanna fjóra, þ.á.m. fundargerðir
- Lýsingar á einstökum virkjunarkostum
- Kort
- Ýmis undirgögn er tengjast matsvinnu faghópa
- Heimildaskrár
