Leita á vefnum


ÍSLENSK ORKA OG VIRKJUNARKOSTIR 2. ÁFANGA RAMMAÁÆTLUNAR

Orkubúskapur  Íslendinga  byggist  á  jarðhita,  vatnsafli  og  innfluttu  eldsneyti. Orkunotkun  á
hvern  íbúa hérlendis er með því mesta  sem þekkist og hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa er
hærra en hjá öðrum þjóðum. Hlutur innlendra orkulinda hefur aukist mikið á undanförnum áratugum. Rúmlega 80% af allri frumorku  sem  tekin  er  til  vinnslu  hér  á  landi  er  innlend  og  kemur frá  endurnýjanlegum orkulindum.   Árið  2007  komu  um    15%  frá  vatnsafli  en  67%  frá  jarðhita  og  um  18%  frá innfluttum  orkugjöfum,  fyrst  og  fremst  eldsneyti,  þar  af  um  16%   sem  bensín  og  olía  fyrir fiskveiði- og bílaflotann, og  um 2% kol sem notuð eru í orkufrekum iðnaði.

Smellið hér til að nálgast kynningu á orkukostum og orkunotkun Íslendinga í 2. kafla niðurstöðuskýrslu faghópa. Kaflanum fylgja tvær töflur með heildaryfirliti yfir þá orkukosti (vatnsaflskostir og jarðhitakostir) sem eru til umfjöllunar í 2. áfanga sem og skýringar við efni tlaflanna. Einnig má nálgast kort sem sýnir staðsetningarvirkjunarkostanna.



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica