UMSAGNARFERLI
8. MARS - 3. MAÍ 2010
Öllum var heimilt að senda inn umsögn - ábendingar og athugasemdir - um niðurstöður faghópanna, en tímafrestur til þess var 3. maí 2010 (var upphaflega 19. apríl). Umsagnir voru sendar inn í tölvupósti á netfangið rammaaetlun@rammaaaetlun.is. Fyrirspurnir mátti senda á sama netfang. Einnig mátti senda skriflegar umsagnir á póstfangið: Rammaáætlun, c/o Orkugarður, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík.
Alls bárust 39 umsagnir til verkefnisstjórnar og allar liggja þær frammi á þessari vefsíðu. Einnig eru birt viðbrögð og svör sem veitt voru við umsögnum og athugasemdum í þeim.
Á meðan á kynningar-/umsagnarferlinu stóð efndi verkefnisstjórn til tíu kynningarfunda víða um land. Fundirnir voru auglýstir á forsíðu þessa vefs og í fjölmiðlum.
Skýrslan um niðurstöður faghópa var prentuð í takmörkuðu upplagi og voru prentuð eintök fyrst og fremst send þeim aðilum er sóttu kynningar og/eða samráðsfundi með verkefnisstjórn. Aðrir sem áhuga hafa á efni skýrslunnar geta nálgast eintak á þessu vefsvæði.
