SKÝRSLA VERKEFNISSTJÓRNAR UM NIÐURSTÖÐUR FAGHÓPA
SKÝRSLA UM NIÐURSTÖÐUR FAGHÓPA (MARS 2010)
Á þessari síðu má nálgast skýrslu verkefnisstjórnar um niðurstöður faghópa sem var helsta kynningargagnið sem verkefnisstjórn laggði fram vegna kynningar- og umsagnarferlisins. Ítrekað skal að niðurstaða faghópa var ekki lokaniðurstaða 2. áfanga rammaáæltunar. Niðurstöður faghópanna sem í skýrslunni birtast verða grunnur fyrir endanlega niðurstöðu verkefnisstjórnar. Loka niðurstaða verkefnastjórnar 2. áfanga felst í samfléttun niðurstaða faghópanna auk þess sem tekið verður mið af umsögnum sem bárust frá öðrum aðilum.
Bent skal á að undir umfjöllun um faghópa má nálgast einstakar greinargerðir hópanna. Þar leggur faghópur II (ferðaþjónusta, útivist og hlunnindi) fram ítarlegri umfjöllun um aðferðafræði sína en birtist í skýrslunni.
Í skýrslunni er að finna kynningu á þeim virkjunarkostum/svæðum sem liggja undir mati 2. áfanga rammaáætlunar (sjá nákvæmari lýsingar á vikjunarkostum) ásamt lýsingu á starfi, aðferðafræði og niðurstöðum þeirra fjögurra faghópa sem mátu svæði og virkjunarkosti, hver á sínu sérsviði. Í umsagnarferlinu var leitað eftir athugasemdum og ábendingum um þessar niðurstöður faghópanna og var ferlið öllum opið.
Skýrslan var prentuð í takmörkuðu upplagi og voru prentuð eintök fyrst og fremst send þeim aðilum er sóttu kynningar og/eða samráðsfundi með verkefnisstjórn. Einnig var eintökum dreift á kynningarfundum stjórnarinnar (sjá forsíðu). Almenningur og aðrir hagsmunaaðilar geta nálgast skýrsluna á þessari vefsíðu.
Smellið hér til að nálgast heildarskýrsluna.
Smellið hér til að opna lista yfir vatnsaflskosti 2. áfanga.
Smellið hér til að opna lista yfir jarðvarmakosti 2. áfanga.
Smellið hér til að nálgast kort sem fylgja heildarskýrslu.
