Kynning á rammaáætlun
1999-2011
Rammaáætlun um nýtingu varnsafls og jarðvarma var ýtt úr vör árið 1999 eftir nokkurra ára undirbúning. Fyrsta áfanga áætlunarinnar lauk árið 2003 með útgáfu viðamikillar skýrslu en án þess að niðurstöðurnar fengju formlegan sess. Við tók millibilsástand sem fyrst og fremst snerist um að setja af stað viðameiri rannsóknir og afla nýrra gagna. Haustið 2007 skipuðu stjórnvöld nýja verkefnisstjórn til að halda vinnunni áfram með útvíkkaðri nálgun. Auk mats á virkjunarkostum skyldi einnig litið til verðmæta þeirra svæða sem hugsanlegar nýjar virkjanir hefðu áhrif á og meta verndargildi þeirra. Jafnframt skyldi huga betur að háhitasvæðum landsins en í 1. áfanga var gagnaskortur tilfinnanlegur á því sviði. Loks skyldi horfa sérstaklega til markmiða um sjálfbæra vinnslu jarðhitavirkjana. Upphaflegt heiti þessa verkefnis breyttist þannig í Rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnasafl og jarðhitasvæði.
Stutt ágrip af af sögu og þróun rammaáætlunar er að finna í niðurstöðuskýrslu faghópa. Nálgist kynningarkaflann með því að smella hér.
Viðameiri umfjöllun um rammaáætlun er að finna annars staðar á þessari vefsíðu: Um rammaáætlun, 1. áfangi: Nýting og 2. áfangi: Vernd og nýting.
