Leita á vefnum


Á mótum 1. og 2. áfanga

Gagnaöflun, nýir virkjunarkostir og endurmat á aðferðafræði

Í niðurstöðuskýrslu sinni  í árslok 2003 gerði fráfarandi verkefnisstjórn tillögu um hvernig verkefninu skyldi haldið áfram. Í skýrslunni sagði m.a.:

"Umfjöllun í 1. áfanga [Rammáætlunar] snerist einkum um vatnsaflsvirkjanir í jökulám á hálendinu og jarðhitavirkjanir nærri byggð auk Torfajökulssvæðis. Þar voru jafnframt flestir stærstu virkjunarkostirnir sem völ er á. Viðfangsefni 2. áfanga rammaáætlunar verður annars vegar að endurbæta þau gögn sem stuðst var við í 1. áfanga um marga virkjunarkosti og þær aðferðir sem beitt var við mat. Hins vegar þarf að undirbúa nýjar virkjunarhugmyndir með rannsóknum og gerð frumáætlana um tilhögun."  ... "Með þessum niðurstöðum hefur verkefnisstjórn náð því markmiði sem henni var falið að leggja grundvöll að 1. áfanga í forgangsröðun virkjunarkosta. Hafa verður þó í huga að þekking á virkjunarkostum sem teknir voru til skoðunar er í mörgum tilvikum ekki fullnægjandi."

Þannig sýnir yfirlit um stöðu þekkingar á virkjunarkostunum (sbr. dálk F1-heild í  töflu 1.2 á bls. 3 í Viðauka b1 í niðurstöðuskýrslunni) að í 10 tilvikum var þekkingarstigið metið í flokk c (á skala a til c). Því var mikilvægt að afla frekari þekkingar um þessa virkjunarkosti og taka þá síðan til endurmats. Þá voru fjölmargar virkjunarhugmyndir enn ókannaðar og nauðsynlegt að taka til umfjöllunar til að fá heildstætt yfirlit yfir möguleika til orkuöflunar.

Smellið hér (vatnsaflskostir og jarðhitakostir) til að skoða endnalegan lista yfir virkjunarkosti sem voru til umfjöllunar í 2. áfanga rammaáætlunar.

 



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica