seinni verkefnisstjórn 2. áfanga
Frá hausti 2007 til vors 2011
Áfram með smjörið...
Um leið og hin þriggja manna verkefnisstjórn skilaði framvinduskýrslu sinni í maí 2007 lauk störfum hennar. Verkefni sem hún hafið hrundið af stað og ekki var lokið héldu áfram í samræmi við gerða samninga. Um svipað leyti tók við völdum ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar og málefni rammaáætlunar var að finna meðal þeirra málafokka sem getið var um í málefnasamningi. Þar sagði í kaflanum "Í sátt við umhverfið":
Í sátt við umhverfið
"Ríkisstjórnin einsetur sér að Ísland verði í fararbroddi þjóða heims í umhverfismálum. Íslensk stjórnvöld, fyrirtæki og menntastofnanir eru í einstakri stöðu til þess að láta til sín taka á alþjóðavettvangi í baráttu gegn mengun og sóun náttúruauðlinda. Ríkisstjórnin stefnir að því að ná víðtækri sátt um verndun verðmætra náttúrusvæða landsins og gera skýra áætlun um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. ... Til að skapa sátt um vernd og nýtingu náttúrusvæða er mikilvægt að ljúka rannsóknum á verndargildi þeirra og gildi annarrar nýtingar. Sérstök áhersla verði lögð á að meta verndargildi háhitasvæða landsins og flokka þau með tilliti til verndar og orkunýtingar. Stefnt verður að því að ljúka vinnu við rammaáætlun fyrir lok árs 2009 og leggja niðurstöðuna fyrir Alþingi til formlegrar afgreiðslu. Þar til sú niðurstaða er fengin verði ekki farið inn á óröskuð svæði án samþykkis Alþingis, nema rannsóknar- eða nýtingarleyfi liggi fyrir. Nokkur svæði, sem talin eru mikilvæg út frá verndunarsjónarmiðum af stofnunum umhverfisráðuneytisins, verði undanskilin nýtingu og jarðrask þar óheimilt þar til framtíðarflokkun hefur farið fram í samræmi við staðfestar niðurstöður hinnar endurskoðuðu rammaáætlunar. Slík svæði eru Askja, Brennisteinsfjöll, Hveravellir, Kerlingafjöll, Kverkfjöll og Torfajökull. Vatnasviði Jökulsár á Fjöllum verði bætt við Vatnajökulsþjóðgarðinn og tryggt að ekki verði snert við Langasjó í virkjanaskyni. Stækkun friðlandsins í Þjórsárverum verði tryggð þannig að það nái yfir hið sérstaka votlendi veranna."
Ný verkefnisstjórn
Í samræmi við þessa stefnu var afráðið að halda fast við rammaáætlun og leiða hana til lykta á árinu 2009. Skilum verkefnisstjórnar var seinkað til febrúarloka 2010 og aftur til júníloka 2011. Í september 2007 skipuðu iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra þriðju verkefnisstjórn rammaáætlunar og var hún skipuð 12 aðilum:
- Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð, skipuð sem formaður verkefnisstjórnar sameiginlega af iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra.
- Elín R. Líndal, oddviti Húnaþings vestra, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
- Anna Sverrisdóttir, ráðgjafi, tók í ágúst 2008 við af Eydísi Aðalbjörnsdóttur, verkefnisstjóra, sem fulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar.
- Freysteinn Sigurðsson, jarðfræðingur, tilnefndur af náttúruverndarsamtökum. Freysteinn lést í árslok 2008 og eftirmaður hans var Friðrik Dagur Arnarson, framhaldsskólakennari sem tók sæti í verfkefnisstjórn í janúar 2009.
- Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri, tilnefndur af Orkustofnun
- Hjörleifur B. Kvaran, aðstoðarforstjóri Orkuveitu Reykjavíkur (forstjóri frá október 2008), tilnefndur af Samorku.
- Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, tilnefnd af Umhverfisstofnun.
- Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins, tilnefnd af menntamálaráðherra.
- Stefán Arnórsson, prófessor við Háskóla íslands, tilnefndur af iðnaðarráðherra.
- Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Rangárþingi eystra (Alþingismaður frá apríl 2009), tilnefnd af forsætisráðherra.
- Þorbjörg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri vinstri grænna flokkahópa á Norðurlöndum, tók í febrúar 2010 við af Þorsteini Tómassyni, skrifstofustjóra, sem fulltrúi landbúnaðarráðherra.
- Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, tilnefnd af umhverfisráðherra.
Með verkefnastjórn starfa og sitja fundi fulltrúar iðnaðar- og umhverfisráðuneyta. Síðsumars 2008 var ráðinn sérstakur starfsmaður til verkefnisins.
Frá haustinu 2007 hefur verkefnastjórn fundað nær mánaðarlega.
Áhersla á verndun menningar- og náttúruminja
Skömmu eftir að síðari verkefnisstjórn 2. áfanga tók til starfa barst stjórninni erindi frá stjórnvöldum þar sem áréttað var að stjórninni bæri að taka sérstakt tillit til verndunar menningar- og náttúruminja í samræmi við reglur er falla undir heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO).
Drög að reglum um nýtingu háhitavæða
Í sama erindi var verkefnastjórn falið að semja drög að tveimur reglugerðum er lúta að nýtingu háhitasvæða. Önnur reglugerðin taki til framkvæmda á háhitasvæðum þar sem tryggja á að framkvæmdir valdi sem allra minnstum umhverfisáhrifum á svæðunum.
Hin reglugerðin hefur það að markmiði að tryggja sjálfbæra nýtingu jarðvarma.
Reglugerðirnar skulu taka mið af viðeigandi alþjóðasamningum og yfirlýsingum sem Ísland á aðild að, m.a. meginreglna umhverfisréttar og Ríó-yfirlýsingarinnar.
Í samræmi við verkefnið um sjálfbærni jarðhita gerðist verkefnastjórnin aðili að sérfræðihópi sem þegar var að störfum á vegum Orkustofnunar og hafði forystu um fjölþjóðlegt samstarf um sjálfbæra nýtingu jarðvarma.
Lagafrumvarp um rammaáætlun
Haustið 2009 var hafist handa við samningu lagafrumvarps til að setja lagaramma utan um niðurstöðu 2. áfanga rammaáætlunar. Fyrirhugað var að niðurstaða verkefnisstjórnar tengdist frumvarpinu með þingsályktunartillögu. Frumvarpsdrögum var skilað til iðnaðarráðuneytisins í árslok 2009 og sendi ráðherra drögin til umsagnar til ýmissa aðila. Frumvarpið var síðan kynnt á fundi ríkisstjórnar í desember og lagt fyrir þingflokka stjórnarmeirihlutans. Af hálfu faghópa rammaáætlunar var lögð áhersla á að lagafrumvarpið yrði afgreitt sem lög frá Alþingi áður en niðurstaða verkefnisstjórnar yrði gerð opinber. Lög um verndar- og orkunýtingaráætlun voru samþykkt af Alþingi 11. maí 2011. Samkvæmt þeim leggur iðnaðarráðherra í samráði við umhverfisráðherra fram tillögu til þingsályktunar um flokkun virkjunarhugmynda á grundvelli tillagna verkefnisstjórnar 2. áfanga rammaáætlunar.
