faghópar 2. áfanga rammaáætlunar
Sem og raunin var í 1.áfanga hafa verið settir á laggirnar sérstakir faghópar sem verða verkefnisstjórn til aðstoðar við mat virkjunarkosta í 2. áfanga. Verkefni hópanna er að fara yfir virkjunarkosti hver frá sínum sjónarhóli, meta þá og gera tillögur til verkefnisstjórnar. Í faghópunum sitja sérfræðingar á viðkomandi sviði.
Við mönnun faghópa 1. áfanga kallaði iðnaðarráðuneytið eftir tilnefningum frá fjölmörgum stofnunum, félagasamtökum og fyrirtækjum. Þrír faghópar voru þess vegna fjölmennir (13-15 þátttakendur) en einn (faghópur IV) taldi sjö meðlimi.
Verkefnisstjórn 2. áfanga ákvað að hafa annan háttinn á við val þátttakenda í faghópa í þeim tilgangi að gera starf þeirra markvissara. Eftir sem áður eru hóparnir fjórir en þeir eru fámennari og verkefnastjórnin valdi sjálf meðlimina í stað þess að leita eftir tilnefningum ytri aðila. Með þessu móti er þess freistað að tryggja að færustu sérfræðingar séu kallaðir til, að sérfræði þekking innan hópanna sé hæfilega dreifð og að starf hópanna verði markvisst. Það verður í höndum faghópanna sjálfra að setja á laggirnar undirhópa og/eða kalla til ráðgjafar fleiri sérfræðinga um einstaka kima starfssviðs þeirra.
Skipun faghópanna lauk í nóvember 2008 og stefnt var að verkskilum til verkefnisstjórnar í janúar 2010.
Faghópur I: Náttúra og menningarminjar
Verkefni: Að meta áhrif einstakra virkjunarkosta á landslag, jarðmyndanir, gróður, dýralíf og minjar.
Formaður: Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði.
Meðlimir:
- Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands
- Hilmar J. Malmquist, vatnavistfræðingur, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs
- Kristinn Haukur Skarphéðinsson, dýravistfræðingur, fagsviðsstjóri á Náttúrufræðistofnun Íslands
- Magnús Ólafsson, jarðefnafræðingur, Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR)
- Sólborg Una Pálsdóttir, sagn- og fornleifafræðingur, deildarstjóri hjá Fornleifavernd ríkisins
- Einnig var Freysteinn Sigurðsson, jarðfræðingur, kallaður til en hann lést í árslok 2008, skömmu áður en hópurinn kom fyrst saman.
Til liðs við hópinn komu eftirtaldir sérfræðingar í nóvember 2009 og tóku þátt í matsferli vinnunnar:
- Auður Sveinsdóttir, landslagsarkitekt, dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands
- Gísli Már Gíslason, líffræðingur, prófessor í vatnalíffræði við Háskóla Íslands
- Haukur Jóhannesson, jarðfræðingur hjá ÍSOR
- Ólafur Arnalds, jarðvegsfræðingur, deildarforseti umhverfisdeildar Landbúnaðarháskóla Íslands
- Ragnheiður Traustadóttir, fornleifafræðingur, Háskólinn á Hólum
- Rannveig Thoroddsen, líffræðingur, Náttúrufræðistofnun Íslands (ritari í matsvinnu)
- Snorri Baldursson, líffræðingur, Náttúrufræðistofnun Íslands
Faghópur II: Ferðaþjónusta, útivist og hlunnindi
Verkefni: Að meta áhrif einstakra virkjunarkosta á ferðaþjónustu, útivist, landbúnað og hlunnindi.
Formaður: Anna G. Sverrisdóttir, ráðgjafi, frá Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF).
Meðlimir:
- Sveinn Runólfsson, náttúrufræðingur, Landgræðslustjóri
- Anna Dóra Sæþórsdóttir, landfræðingur, lektor í ferðamálafræðum við Háskóla Íslands
- Rögnvaldur Ólafsson, forstöðurmaður Stofnunar fræðasetra Háksóla Íslands, tók sæti Brynhildar Davíðsdóttur, dósents í umhverfis- og auðlindafræðum hjá Háskóla Íslands, sem dró sig í hlé í mars 2009.
- Jóhannes Sveinbjörnsson, bóndi og dósent hjá Landbúnaðarháskóla Íslands
- Ólafur Örn Haraldsson, landfræðingur, forseti Ferðafélags Íslands
- Friðrik Dagur Arnarson, framhaldsskólakennari. (Frá 15. ágúst 2009)
- Guðni Guðbergsson, sérfræðingur á Veiðimálastofnun. (Frá 30. okt. 2009)
- Í desember 2009 kom Einar Torfi Finnsson, landmótunarfræðingur og einn eigenda Íslenskra fjallaleiðsögumanna, til liðs við hópinn og tók þátt í matsferli vinnunnar.
Faghópur III: Þjóðhagsmál, atvinnulíf og byggðaþróun
Verkefni: Að meta hvaða áhrif það hefur á aðra atvinnustarfsemi að nýta virkjunarkostina. Einnig að meta langtímaáhrif þess á efnahag, atvinnulíf og byggðaþróun.
Formaður: Kjartan Ólafsson, lektor í félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri
Meðlimir:
- Daði Már Kristófersson, hagfræðingur, séfræðingur hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands
- Guðmundur Guðmundsson, sérfræðingur á Byggðastofnun
- Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur, landfræðingur og aðstoðarforstöðumaður á Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri
- Jóhannes Geir Sigurgeirsson, bóndi og framkvæmdastjóri, fyrrverandi Alþingismaður,
- Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, menningarfulltrúi Eyþings
Faghópur IV: Orkulindir
Verkefni: Að skilgreina þá kosti sem fyrir hendi kunna að vera til að nýta vatnsorku og jarðhita til raforkuvinnslu, meta afl, orkugetu og líklegan orkukostnað hvers þeirra og forgangsraða eftir hagkvæmni. Þessi faghópur skilgreinir virkjunarkosti sem aðrir faghópar taka afstöðu til.
Formaður: Guðni A. Jóhannesson, Orkumálastjóri
Meðlimir:
- Agnar Olsen, staðgengill forstjóra Landsvirkjunar
- Edda Rós Karlsdóttir (dró sig í hlé í apríl 2009)
- Guðmundur Þóroddsson, framkvæmdastjóri, Reykjavik Geothermal
- Jakob Sigurður Friðriksson, framkvæmdastjóri framleiðslu og sölu, Orkuveita Reykjavíkur
- Ómar Örn Ingólfsson, sviðsstjóri vatnsaflssviðs, Mannvit
Í árslok 2009 ákvað iðnaðarráðherra að niðurstöður faghópanna yrðu settar í opið umsagnarferli þar sem hagsmunaaðilum og almenningi gæfist færi á að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum um aðferðafræði og niðurstöður faghópanna. Í því skini var gefin út skýrsla til að kynna starf og afurðir faghópanna og kom hún út um leið og umsagnarferlið hófst, þann 8. mars 2010. Í fyrstu skyldi umsagnarferlið standa í 6 vikur en síðar var það lengt um tvær vikur þannig að umsagnir skyldu hafa borist í síðasta lagi þann 3. maí 2010. Sett var upp sérstakt opið svæði á þessari vefsíðu þar sem skýrslan og margháttaðar upplýsingar og gögn um starf faghópanna liggja frammi.
Jafnframt efndi verkefnisstjórn til kynningarfunda víða um land þar sem formenn faghópa kynntu aðferðafræði og niðurstöður hópanna og svöruðu auk þess fyrirspurnum. Yfirlit yfir fundina er að finna á forsíðu þessarar vefsíðu.
