Verkefnisstjórn 1. áfanga
1999-2003
Í mars 1999 skipaði iðnaðarráðherra fyrstu verkefnisstjórn rammaáætlunar sem var þannig skipuð:
Sveinbjörn Björnsson, jarðeðlisfræðingur og fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, formaður.
Einar Bollason, framkvæmdastjóri, fulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar.
Guðríður Þorvarðardóttir, landfræðingur, Náttúruvernd ríkisins.
Guðrún Zoëga, verkfræðingur.
Ingimar Sigurðsson, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu.
Jón Helgason, formaður Landverndar.
Jón Ingimarsson, skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneytinu. Í febrúar 2000 tók Helgi Bjarnason, verkfræðingur, við starfi Jóns í ráðuneytinu og settist í verkefnisstjórn í hans stað.
Jónas Elíasson, prófessor í umhverfis- og byggingarverkfræði.
Jón Gunnar Ottósson, líffræðingur og forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Vilborg Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Þorsteinn Tómasson, jurtaerfðafræðingur og forstjóri Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins. (tók sæti í verkefnisstjórn í maí 2000).
Þorvaldur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.
Auk þessara aðila sátu formenn fjögurra faghópa í verkefnisstjórninni:
Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði (formaður faghóps I ).
Haukur Jóhannesson, jarðfræðingur og forseti Ferðafélags Íslands (formaður faghóps II).
Sigurður Guðmundsson, skipulagsfræðingur (formaður faghóps III ).
Þorkell Helgason, stærðfræðingur og orkumálastjóri (formaður faghóps IV).
